Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Ström og Wasser - Tónleikar

$
0
0

Nú er komið að því að Strom & Wasser fari um austur og norðurhéruð Íslands. Sveitin hefur nú nýverið farið um Þýskaland og lék m.a. á Hafnarhátíðinni í Flensborg fyrir rétt tveimur vikum og á hinu þekkta Wutsrock - festivali í Hamborg, sem haldið var að þessu sinni í 38 sinn. Strom & Wasser byrjar för sína á Seyðisfirði og heldur svo áfram norður eftir. Í bandinu eru úrvals-hljóðfæraleikarar þýskir, auk forsprakkans HEINZ RATZ, en að auki syngja með sveitinni Ragnheiður Gröndal og Egill ólafsson, þá blæs Haukur Gröndal í klarinett og saxafón. 

Á öllum stöðunum mun Heinz Ratz, halda samdægurs fyrirlestur sem hann kallar; Hin nýja ásýnd Evrópu - fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Á Akureyri verður hann með fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri, Egill Ólafsson mun og segja af kynnum sínum af Herra Ratz og segja af helstu afrekum hans og sérstöðu í þýsku samfélagi. 

Heinz er baráttumaður fyrir auknum mannréttindum og lífsrými fyrir þá sem eru án griðlands, nýverið hefur háskólasamfélagið þýska heiðrað framlag hans í þágu flóttamanna, sem hann hefur virkjað með músíkþátttöku og með því ljáð þeim rödd í þýsku samfélagi. Í fyrstu var þetta í óþökk stjórnarinnar en nú hafa augu hennar opnast fyrir jákvæðu framlagi HEINZ RATZ og stjórnvöld hafa boðist til að ganga til liðs og styðja verkefnið.

Músík Strom & Wasser er skemmtileg blanda af kabarett/rapp/funk/folk þar sem tónlistararfur Evrópu er skoðaður - kirkjutóntegundir, tataraskalar, dýraköll, tónlist austur-kirkjunnar, balkanskir dansar, Fato og áfram mætti telja. Sungið er á gelísku/ísl/þýsku og ensku. Reykjavík - Project, heitir þetta framlag Strom & Wasser og Egill og Ragnheiður eru meðhöfundar tónlistar og texta. 

Nýverið kom út tveggja platna albúm Sveitarinnar sem verður til sölu á tónleikunum gegn vægu verði. Útgáfan er ein af tíu væntanlegum á vegum S&W sem hið virta útgáfufélag í Traumton í Berlín gefur út. Tónleikarnir hefjast kl.21 á Græna Hattinum og er aðgangseyrir kr. 3500 en kr.3000 í forsölu.

Vinsamlegast athugið

18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Love Quotes – Nagmamahal


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tropa Quotes


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


“BAHAY KUBO HUGOT”


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Pokemon para colorear


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Sapos para colorear


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Long distances monthsary message tagalog


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


Girasoles para colorear