Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Reykholtshátíð 2016 - Bach-Mozart - Boccherini

$
0
0

Föstudagur 22. júlíkl. 20
„Árstíðir”
Opnunartónleikar Reykholtshátíðar
Reykholtskórinn
Árstíðirnar eftir Vivaldi

Reykholtskórinn undir stjórn Viðars Guðmundssonar  mun hefja 20. Reykholtshátíðina.  Kórinn, sem er samstarfsverkefni Hvanneyrar-, Reykholts-, og Stafholtsprestakalla, mun flytja bæði íslensk og erlend lög en sérstakur gestur kórsins verður Elmar Gilbertsson tenór.  Einnig munu hljóðfæraleikarar Reykholtshátíðar taka þátt í flutningi nokkra laga.  Eftir hlé verður haldið á suðrænar slóðir með  heildarflutningi á hinu ástsæla verki Árstíðunum eftir Vivaldi.  Einleikshlutverkið verður í höndum Ara Þórs Vilhjálmssonar fiðluleikara, en hann er gestum Reykholtshátíðar af góðu kunnur, en hann starfar nú sem leiðari 2. fiðlu í Fílharmóníusveit Helsinki.


Laugardagur 23. júlíkl. 16
„Bach-Mozart-Boccherini”
Kammertónleikar

Ljúfir tónar hljóma á þessum síðdegistónleikum Reykholtshátíðar.  Sigurgeir Agnarson mun hefja leik á hinni björtu og fallegu sellósvítu nr. 1 í G-dúr eftir J.S. Bach.  Næst á dagskrá er Mozart flautukvartettinn í D-dúr með sínum undurfagra hæga kafla. Capriccio fyrir 3 fiðlur eftir þýska fiðluleikarann og tónskáldið Friedric Hermann er lítil gletta með hægum inngangi þar sem tónskáldið leikur sér með þessa frekar óvanalegu hljóðfærasamsetningu.  Tónleikunum lýkur á strengjakvintett í f-moll eftir hið ítalsk ættaða tónskáld og sellósnilling Boccherini.  Boccherini samdi fjölda verka, en mörg þeirra eru sjaldan flutt í dag, m.a. þessi gullfallegi strengjakvintett í f-moll.


Laugardagur 23. júlíkl. 20
„Ástir á köldum klaka”
Elmar Gilbertsson, tenór
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó

Stórtenórinn Elmar Gilbertsson og píanóleikarinn Helga Bryndís Magnúsdóttir taka höndum saman á þessum tónleikum.  Fyrir hlé flytja þau lagaflokkinn Ástir skáldsins (Dichterliebe) eftir Robert Schumann.  Þessi lagaflokkur er einn af hápunktum í sönglagagerð rómantíska tímabilsins í tónlistarsögunni en hann samanstendur af sextán sönglögum við texta eftir Heinrich Heine. 

 Eftir hlé verður sjónum beint að klakanum í norðri með flutningi á úrvali laga úr Heimskringlu eftir Tryggva M. Baldvinsson við texta Þórarins Eldjárns í úsetningu fyrir salon hljómsveit.  Að lokum verða fluttar útsetningar Þórðar Magnússonar á vel þekktum íslenskum dægurlögum fyrir píanótríó og söngrödd.  


Sunnudagur 24. júlí kl. 16
„Himneskur Schubert”
Lokatónleikar Reykholtshátíðar

Tveir af meisturum klassíska tímabilsins verða í sviðsljósinu á lokatónleikum Reykholtshátíðar ásamt frumflutningi á glænýju verki eftir Gunnar Andreas Kristinsson.  Strengjatríó Beethovens eru gullmolar sem vert er að heyra, sérstaklega hið ástríðufulla tríó í c-moll op. 9.  Reykholtshátíð heldur áfram að panta ný verk til að frumflytja á hátíðinni.  Að þessu sinni verður leikið nýtt verk eftir Gunnar Andreas Kristinsson, en verkið kallast úr Grímnismálum og er skrifað fyrir píanókvintett og söngrödd.  Drottning kammerverka Schuberts slær svo botninn í Reykholtshátíð, eða hinn himneskt fallegi selló kvintett í C-dúr.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.