
Kristín Þóra hefur á undanförnum árum unnið sem víóluleikari, tónskáld og hljóðlistakona á Íslandi og í Kaliforníu. Hún hefur þróað með sér ríkt tónmál á víólunni sem hún nýtir sér til flutnings tónlistar úr ólíkum áttum, svosem frjáls spuni, þjóðlagatónlist, samtímatónlist, tilraunatónlist og eigin tónlist. Í spuna og eigin verkum notast Kristín ósjaldan einnig við umhverfisupptökur, rafhljóð og syngur. Hér mun hún jafnt spinna og vefa saman góðri blöndu af nýju og gömlu efni eftir sig sjálfa og aðra.