Útvarpsþátturinn og viðburðarfyrirtækið Elements stendur fyrir trylltu klúbbakvöldi með tónlistarmanni og plötusnúð frá Bretlandi sem hefur skapað sér stóran sess í huga og hjörtum danstónlistarunnenda út um allan heim. Omid Nourizadeh eða Omid16b eins og hann er þekktur best sem mun koma fram á skemmtistaðnum Paloma laugardagskvöldið 28. maí næstkomandi.
Þeir sem muna eftir komu S.O.S. (Desyn Masiello, Demi og Omid16b) hingað til lands á sínum tíma vita hvað er í vændum á Paloma, laugardagskvöldið 28. maí næstkomandi. Þá ætlar progressive og húsgoðsögnin Omid16b að koma fram á Elements kvöldi. Omid16b á eitt besta progressive lag samtímans að sögn Exos. Þú vilt ekki missa af!
Dagskrá
Elements kynnir
Omid16b (SexOnWax/Aloa)
Ghozt (Elements)
Funktional Patterns (Geysir Records)
- ásamt fleirum.