Annika Hoydal - Harkaliðs Drottning!
Í lok sjöunda áratugarins og á fyrri hluta þess áttunda naut færeyska hljómsveitin Harkaliðið gríðarlega mikilla vinsælda hérlendis. Lög með Harkaliðinu voru spiluð í öllum óskalagþáttum útvarpsins sem þá voru ráðandi í spilun á dægurlögum. Íslendingar tóku ástfóstri við lagið "Ólavur Riddararós". Það er ennþá oft spilað í útvarpi. Geisladiskur með laginu hefur selst í þúsunda hérlendis á þessari öld. Harkaliðið var órafmagnaður þjóðlagakvartett. Eitt helsta tromp hans var söngkonan Annika Hoydal. Hún hefur sterka, líflega, trausta og auðþekkta söngrödd sem setur kraftmikinn og heillandi svip á öll lög.
Annika fæddist 1945 í Þórshöfn, höfuðborg Færeyja. Hún ólst upp til nokkurra ára í Suður-Ameríku. Síðar bjó hún á Spáni og í Skotlandi.
1973 útskrifaðist hún sem leikkona úr danska Þjóðleiksskólanum og hefur síðan leikið í kvikmyndum. Jafnframt snéri hún sér að farsælum og fjölbreyttum sólóferli. Þar á meðal gerði hún vinsæla og ljúfa barnaplötu, sem og plötu með ljóðum færeyska þjóðskáldsins, Williams Heinesen.
1979 tók Annika þátt í dönsku sönglagakeppninni Melodi Grand Prix. Hún er einskonar hliðstæða við dönsku forkeppni Eurovision. Lag hennar, "Aldan", náði í gegnum öll þrep keppninnar, landaði 4.sætinu og hefur síðan verið eitt af sívinsælum lögum Anniku.
Annika Hoydal verður a´ I´slandi dagana 20. til 25. Maí a´samt fimm manna hljo´msveit og heldur tónleika í Bæjarbíó þann 20. Maí kl. 21:00
Þar mun hún leika lög af mjög frjóum og fjölbreyttum ferli sínum, þar á meðal af nýjustu plötu sinni "Endurljós" sem hefur hlotið frábærar viðtökur.