
Skálmöld og The Vintage Caravan á Selfossi!
Víkingarokksveitin Skálmöld heldur tónleika í Hvíta húsinu Selfossi föstudagskvöldið 23. ágúst. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sveitin spilar í þessu frábæra húsi, síðast var húsfyllir og ekkert annað í stöðunni en að snúa til baka og endurtaka leikinn. Að þessu sinni fylgja þeim undrabörnin í The Vintage Caravan, hljómsveit sem hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarið fyrir stórkostlega sviðsframkomu og spilagleði.
Skálmöld sendi frá sér tónlistarmyndband við lagið Gleipnir í vikunni sem hefur farið víða í netheimum og hlotið einróma lof. Það verður að teljast frábært veganesti því strákarnir halda í utan í 6 vikna tónleikaferðalag um Evrópu á næstunni og eru tónleikarnir í Hvíta húsinu einir þeir allra síðustu fyrir þann víking.
Hvíta húsið verður opnað klukkan 21.00, tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og miðaverð litlar 3.000 krónur. Aldurstakmark er 18 ár og rétt er að árétta að báðar sveitir verða með varning til sölu.