Hljómsveitin Hvanndalsbræður lætur nú undan gríðarlegum þrýstingi áhangengda bandsins á höfuðborgarsvæðinu og blása til stórtónleika í Tjarnarbíó þann 5. mars n.k.
Um er að ræða 6 manna útgáfuna af hljómsveitinni sem gaf m.a. út hina geysivinsælu plötu Knúsumst um stund.
7 hljómplötur hafa komið út með hljómsveitinni frá árinu 2003 og verða flutt lög af öllum plötunum í bland, nokkurskonar „skást of“.
Hvanndalsbræður hafa ekki haldið tónleika í Reykjavík í fjölmörg ár en tónleikarnir nú eru liður í upphitun fyrir „Eistlandstúrinn 2016“ sem farinn verður eftir páskana og byrjar í Tallinn 8. apríl 2016.
Ekki missa af einstöku tækifæri, komdu og sjáðu Hvanndalsbræður í fanta formi í Tjarnarbó 5. mars!
Miðaverð 2.900 kr.