Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

ATP Iceland 2016 - Helgarpassi 16 ára og eldri/years and older

$
0
0

ATP ICELAND 2016

Tónlistarhátíð sem haldin verður á gömlu NATO herstöðinni Ásbrú Helgina 1-3 júlí

Sleep, Thee Oh Sees, TY SEGALL and THE MUGGERS, Angel Olsen, Les Savy Fav, Tortoise ásamt fleiri listamönnum koma fram á ATP á Íslandi 2016.

John Carpenter, Anika, Yasmine Hamdan, Blanck Mass og Mueran Humanos spila einnig á hátíðinni. Örvar Smárason og Gunnar Tynes úr múm hafa að auki verið staðfestir en þeir leika undir á sérstakri sýningu myndarinnar Menschen am Sonntag.

Tónlistarhátíðin ATP á Íslandi tilkynnir hér í annað sinn nöfn framúrskarandi listamanna sem koma fram á tónlistarhátíðinni næsta sumar á Ásbrú dagana 1. til 3. júlí 2016.

Sleep, Thee Oh Sees, TY SEGALL and THE MUGGERS, Angel Olsen, Les Savy Fav og Tortoise eru nýjustu viðbæturnar á glæsilega dagskrá ATP sem skartar nú þegar sjálfum meistara hryllingsmyndanna, hinum goðsagnakennda John Carpenter, sem í fyrsta sinn á ferlinum flytur tónlist sína opinberlega.

Rithöfundurinn, ljóðskáldið og tónlistarkonan Anika (Invada, Stones Throw) mun koma fram með líbísku söngkonunni og lagahöfundinum Yasmine Hamdan, Blanck Mass mætir en það er sólóverkefni sem Benjamin John Power úr Fuck Buttons ber ábyrgð á. Argentínska dúóið Mueran Humanos sem býr nú í Berlín kemur einnig en þau gefa út hjá ATP Recordings.

Að lokum hafa Örvar Smárason& Gunnar Tynes (múm) verið bókaðir á hátíðina en þeir munu spila tónlist undir sýningu myndarinnar ‘Menschen am Sonntag’ (People on Sunday) – en þetta er þýsk þögul kvikmynd síðan 1930 sem er byggð á handriti Billy Wilder. Einnig er vert að geta þess að hinn virti uppistandari Stewart Lee mun bregða undir sig betri fætinum en hann kemur sjaldan fram erlendis.

Tilkynnt verður um fleira listafólk og hljómsveitir sem koma fram á ATP á Íslandi 2016 síðar.

Listi yfir þá listamenn og hljómsveitir sem hafa staðfest komu sína næsta sumar:

John Carpenter
Sleep
Thee Oh Sees
TY SEGALL and THE MUGGERS
Angel Olsen
Les Savy Fav
Tortoise
Anika
Yasmine Hamdan
Blanck Mass
Mueran Humanos
Örvar Smárason & Gunnar Tynes (múm) spila undir Menschen am Sonntag
Stewart Lee með uppistand og grín.

ATP á Íslandi er líkt og áður haldið á Ásbrú í Keflavík. Boðið er upp á tónlist á tveimur sviðum innandyra auk þess sem sýndar verða sérvaldar kvikmyndir, keppt í PopQuiz, dansað við dj-tóna í diskósal og margt fleira. Meðal listamanna sem komið hafa fram á ATP á Íslandi síðustu þrjú ár má nefna Nick Cave and the Bad Seeds, Portishead, Iggy Pop, Neil Young & Crazy Horse og Public Enemy.

„Expectations met, exceeded and transcended, it brings the curtain down on this writer’s festival
experience, a likeminded mecca in which spectacular weight and sublime restraint went
handinhand.“
, - The Line of Best Fit , July 2015

„This weekend was without a doubt the best music festival I've ever been to“, - KEXP , 2014

Miðar fyrir 16 ára og eldri
Helgarpassi - 19.000kr (Frá föstudegi til sunnudags)

Miðar fyrir 2. - 15. ára
(Vinsamlegast athugið: Börn undir 2. ára þurfa ekki miða)
Helgarpassi - 9.500kr (Frá föstudegi til sunnudags)

Strætó fram og til baka frá Reykjavík fyrir alla þrjá daga
5.500kr (Inniheldur ekki armband á hátíðina)


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog God Quotes to inspire you


5 Tagalog Relationship Rules


INUMAN QUOTES


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE