Hátíð í bæ
Níundu jólatónleikarnir „Hátíð í bæ“ fara fram á Selfossi miðvikudaginn 9. desember 2015 klukkan 19:30 í Iðu, íþróttahúsi FSu á Selfossi. Húsið opnað kl. 19:00. Tónleikunum lýkur kl. 22:00.
Flutt verða jólalög og hin sanna jólastemning fær notið sín. Kynnir verður Sigþrúður Harðardóttir (Sissa). Magnað leyniatriði að vanda.
Fram koma: Karítas Harpa Davíðsdóttir, Karlakór Selfoss, Hera Björk Þórhallsdóttir, Labbi, Söngtríóið Iðunn, Margrét og Bergþóra, Sönghópurinn Harmony, stórbassinn Davíð Ólafsson og tenórinn Stefán Íslandi yngri, söngdúettinn Bessi og Dísa og Barnakór Hvolsskóla. Undirleik annast Tríó Vignis Þórs Stefánssonar.