
Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival 2013 - Undir jökli verður haldin helgina 12. - 14. Júlí næstkomandi á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls.
Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin fer fram, sem fer ört vaxandi með hverju árinu.
Í ár verða um 20 íslenskir tónlistarmenn m.a Mikael Lind, Tonik, Samaris, Ozy, Úlfur, Stereo Hypnosis, Rúnar Magnússon O.fl sem koma fram, ásamt 4 erlendum tónlistarmönnum frá Grikklandi, Sviss, Egyptalandi og Bretlandi.
Dagskráin á hátíðinni hefst á föstudagskvöldinu með tónleikum í félagsheimilinu Röst og byrja þeir á slaginu 20:00. Á laugardeginum hefst svo dagskráin utandyra með plötusnúðum sem standur frá kl. 13:00 - 19:00 og verður dagskráin svo færð innanhús í félagsheimilið Röst kl. 20:00 og mun standa til kl 03:00 um nótt.
Aðeins 350 armbönd verða í boði í ár og hvetjum við því fólk til að tryggja sér armband á hátíðinna tímanlega, síðustu 2 ár seldist upp og komust færri að en vildu.
Mjög gott tjaldsvæði er á Hellissandi, en það opnaði sumarið 2011 og er staðsett í fallegu hrauni er kallast Sandahraun. Á svæðinu er þjónustuhús með salerni, sturtum og vaskarými. Skemmtilegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni, fallegar fjörur með öllum þeim ævintýrum sem þær bjóða uppá. Sólsetrin við Breiðafjörð séð frá Sandahrauni eru óviðjafnanleg og
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er næsti nágranni við tjaldsvæðið.
Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafrænt landslag.