Sigga Eyrún syngur inn jólin í rólegheitastemningu ásamt Karli Olgeirssyni (söngur & rhodes/píanó) og Ásgeiri Ásgeirssyni (gítar) í Petersen svítunni, Gamla bíó.
Lögin verða að megninu til í útsetningum Karls sem er alls enginn Leppalúði þegar kemur að því að skapa fallega jólastemningu.
Huggulegir og persónulegir jólatónleikar í fallegri og nýuppgerðri Petersen svítu á efstu hæð í Gamla Bíó.
Miðaverði er stillt í hóf svo þið eigið fyrir salti og möndlu í jólagrautinn.
Ást og friður