Þegar hljómsveitin Nanook gaf út fyrstu plötuna sína árið 2009, “Seqinitta Qinngorpaatit” (“Sólin okkar skín á þig”), urðu þeir strax ein vinsælasta hljómsveit Grænlands. Aðra plötuna gáfu þeir út 2011, “Ai Ai” (Hljómur hamingjunnar). Hljómsveitin hefur síðan gefið út tvo diska og hafa selt alls yfir 10.000 eintök (Grænlendingar eru 56.000). Hljómsveitina skipa bræðurnir Frederik Elsner (söngur og gítar) og Christian Elsner (söngur og gítar), auk Mads Røn (hljómborð), Andreas Otte (bassi) og Martin Zinck (trommur). Hljómsveitin hefur komið fram víða um heiminn, m.a. í Tivoli í Kaupmannahöfn, í Kennedy Center í Washington og í Japan. Allir textar sveitarinnar eru á grænlensku. Elsner bræðurnir hafa í tvígang fengið hin þekktu KODA verðlaun fyrir starf sitt með Nanook.
↧