Hver vill ekki skella sér í búning og fara á Halloween útgáfutónleika í Gamla Bíó þann 30. Október!
Vertu eitur, slepptu nærbuxunum, reddaðu þér búning og skelltu þér í partý ársins þar sem allt getur gerst!Eldgleypir, grímubúningar, drykkir, krossfesting, draugar, hauskúpur og almenn geðveiki verður í fyrirrúmi.
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir þrjá bestu búningana.
Þeir sem koma fram eru:
GKR, MARTEINN, ALEXANDER JARL, GERVISIKUR og að sjálsögðu SHADES OF REYKJAVÍK.
Forsala Miða hefst 1. Október og kostar miðinn litlar 2.000 kr til 8. Okt.
2.500 kr eftir 8. Okt.
Shades Of Reykjavík er ein helsta Rappsveit landsins en hún fagnar útgáfu sinnar fyrstu breiðskífu í Gamla Bíó þann 30. Októbernæstkomandi. SOR hafa verið að trylla landann með lögum eins og Lúpínublús og nú seinast Enginn Þríkantur Hér þar sem indverska prinsessan Leoncie syngur. SOR eiga stórann aðdáendahóp og óhætt er að segja að hann mun stækka með útgáfu plötunnar.
Albumm.is er vefmiðill sem fjallar um Íslenska tónlist og grasrótarmenningu á Íslandi og fór hún í loftið 23. Október 2014. Albumm.is fékk strax gríðarlega góðar viðtökur og hefur hún stækkað þétt og örugglega á þessu eina ári. Einnig er Albumm.is með útvarpsþátt á X-inu 977öll miðvikudagskvöld kl 23:00 en Það má segja að Albumm.is er eini miðillinn sem fjallar um Íslenska tónlist og grasrótarmenningu á Íslandi en það var mikil vöntun á slíkum miðli. Albumm.is fagnar eins árs afmæli sínu með Shades Of Reykjaík þann 30. Október í Gamla Bíó og þakkar þar um leið frábærar viðtökur á liðnu ári og hlakkar Albumm.is til það sem koma skal á næstu árum.