Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Agent Fresco - Tónleikar

$
0
0
Ein af framsæknari hljómsveitum okkar Íslendinga síðari ára er án vafa rokksveitin Agent Fresco úr Reykjavík.Flókin og ágeng en jafnframt angurvær og ástríðufull tónlist þeirra hefur fallið vel í kramið hjá íslenskum tónlistarunnendum.
Hljómsveitin sendi nýverið frá sér sína aðra breiðskífu „Destrier“ sem hefur fengið einróma lof gagnrýnenda um allan heim.

Framundan eru svo heilmikil ósköp af tónleikum um Evrópu og mun sveitin svo stíga sín fyrstu skref innan landamæra Bandaríkjanna á næsta ári.

Agent Fresco ætlar að því tilefni að blása til útgáfutónleika á Græna Hattinum. Ath að nú þegar hefur selst upp á risa tónleika þeirra í Hörpu. Tryggið ykkur miða strax.
Miðasala hefst fim.1. október


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696