Jól í stofunni eru nú haldin annað árið í röð, í þetta sinn í hinu glæsilega og nýuppgerða Gamla Bíói. Það er því óhætt að segja að andi gömlu flauelsbarkanna svífi þar yfir vötnum. Sem fyrr spjallar Þór, leikur við hvurn sinn fingur og strýkur raddböndin blítt þar sem öll lög eru færð í stíl fallegu jólalaganna sem Bing Crosby, Haukur Morthens, Nat King Cole og Michael Bublé hafa einnig sungið. Í þetta sinn verða textar flestir á íslensku, því þetta árið kemur út ný jólaplata sem ber sama nafn og inniheldur mörg af þeim lögum sem flutt verða á tónleikunum. Meðal þeirra má nefna sérstaka útgáfu af lagi Ingibjargar Þorbergs, Hin fyrstu jól, Heims um ból, ásamt tveim glænýjum jólalögum.
Hljómsveitarstjóri og píanóleikari er Vignir Þór Stefánsson, Birgir Bragason leikur á kontrabassa, Erik Qvick á trommur og Matthías Stefánsson á fiðlu og gítar.
Gestum býðst hér að kaupa plötuna á forsölutilboði og bíður þá árituð plata þeirra í glæsilegu anddyri Gamla Bíós á tónleikadag.