Þá er komið að því að Selfoss-prinsarnir í Skítamóral snúi aftur á Græna Hattinn. Tónleikar þeirra í vor á Græna Hattinum tókust með eindæmum vel og komust færri að en vildu. Sungu gestir hástöfum með öllum lögum og gríðarleg stemning myndaðist í salnum.
Milli laga segja strákarnir skemmtilegar sögur frá farsælum ferli hljómsveitarinnar og þar er víst af nógu að taka!
Ekki missa af þessu einstaka kvöldi á Græna Hattinum
Milli laga segja strákarnir skemmtilegar sögur frá farsælum ferli hljómsveitarinnar og þar er víst af nógu að taka!
Ekki missa af þessu einstaka kvöldi á Græna Hattinum
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.