„24 Prelúdíur“ er nýtt verk eftir Nathan Hall í samvinnu við píanóleikarann Rose Lachman. Verkið samanstendur af 24 stuttum þáttum, 12 fyrir mánuði ársins frá miðaldabókum um klukkustundir og bænir og 12 þætti úr stjörnumerkjunum. Verkið byrjar á verki þess mánaðar sem það er flutt, og rekur árið frá þeim tíma. Einnig verða flutt píanóverkin „The Well Tempered Clavier“ eftir Bach og Prelúdíur Scriabins, auk frumsaminna verka eftir Nathan Hall.
Nathan var Fulbright styrkþegi á Íslandi veturinn 2010-11. Tónlist hans er innblásin af landslagi, sögu og sjónlist. Hann er með doktorspróf í tónsmíðum frá Colorado Háskólanum í Boulder, er fæddur og uppalinn í New York, en býr í Denver, Colorado.
Rose Lachman er frá Californiu, en er nú búsett í Boulder, Colorado. Hún heldur reglulega tónleika og kennir á píanó. Hún lauk nýverið doktorsprófi í píanóleik frá Colorado háskóla í Bolder, þar sem hún var nemandi Davids Korevaar. Rose sérhæfir sig í tónlist rómantíska tímans og nýrri tónlist núlifandi tónskálda.