Í ár eru 10 ár síðan fyrsta hljómskífa Baggalúts, Pabbi þarf að vinna, kom út. Af því tilefni ætlar sveitin að bruna norður og halda sérlega afmælistónleika í höfuðvígi sínu, Græna hattinum. Lofar sveitin hressandi sveitatónlist, íþróttamannslegri spilamennsku, drengilegri hegðun og hófstilltum gamanmálum. Vinsamlegast fjölmennið.
↧