Eitt best varðveitta leyndarmál menningarlífsins í póstnúmeri 101 eru hljómsveitirnar Gæðablóð og Bíóbandið. Söngvaskáldið Kormákur Bragason fer fyrir Gæðablóði og syngur um ástina, sjávarháska, jazzóðar frænkur, heimsósómann, ástsjúkar konur og svikula menn. Bíóbandið hefur hins vegar Andreu Gylfadóttur fremsta á sviði og hún syngur fræg lög úr þekktum kvikmyndum og ljær þessum perlum sína einstöku túlkun og tilfinningu, til að mynda lög eins og “Goldfinger”, “Skyfall", “You Only Live Twice” og “We Have All The Time In The World” úr Bond myndum.
Hljómsveitirnar skipa þeir;
Eðvarð Lárusson - gítar,
Magnús R. Einarsson - mandólín & gítar,
Tómas M. Tómasson - bassi ,
Jón Indriðason - Trommur,
Hallgrímur Guðsteinsson - slagverk
Hljómsveitirnar skipa þeir;
Eðvarð Lárusson - gítar,
Magnús R. Einarsson - mandólín & gítar,
Tómas M. Tómasson - bassi ,
Jón Indriðason - Trommur,
Hallgrímur Guðsteinsson - slagverk