Lára Rúnars mun spila á Húrra ásamt hljómsveit sinni þriðjudagskvöldið 11. ágúst. Fimmta plata Láru kom út á vormánuðum en sú ber titilinn Þel og er hún bæði draumkennd og ævintýranleg ásamt því að vera fyrsta plata Láru sem öll er sungin á íslensku. Þrjú lög af plötunni Þel hafa nú þegar ratað hátt á vinsældarlista Rásar 2.
Lára hefur ekki spilað í Reykjavík síðan hún hélt útgáfutónleika sína í Fríkirkjunni í lok maí og þvi einstakt tækifæri til að koma og sjá hana ásamt hljómsveit og heyra þessi nýútkomnu lög í bland við áður útgefið efni af eldri plötum hennar.
Hljómsveitina skipa auk Láru:
Arnar Þór Gíslason á trommur
Birkir Rafn Gíslason á gítar
Guðni Finnsson á bassa
Þorbjörn Sigurðsson á hljómborð
Rósa Guðrún Sveinsdóttir á blástur og söng
Valdimar Guðmunds söngur og básúna
Ingibjörg Rúnars á trompet
Miðaverð kr. 1500 kr.
Hér má bæði hlusta á og lesa meira um Láru: