Hljómsveitin Maus snýr aftur til Akureyrar í fyrsta skiptið í 12 ár. Tónleikar Maus eru sjaldséðir þessa daganna þar sem liðsmenn hafa verið á víð og dreif um allar trissur. Tónleikar á Akureyri hafa alltaf verið sérstaklega vel heppnaðir hjá hljómsveitinni á ferli hennar og því er það mikið tilhlökkunarefni á meðal liðsmanna að koma og skemmta gestum á Græna hattinum um Verslunarmannahelgina.
↧