Af fingrum fram
Jón Ólafsson fær til sín gesti og laðar fram þægilega og létta stemningu eins og honum einum er lagið. Einstakir spjalltónleikar þar sem áhorfendur komast í nálægð við tónlistarmenn sem aldrei fyrr.
Af fingrum fram – Sigríður Thorlacius
Föstudagur 25. september kl. 20:30
Þessi frábæra söngkona heimsótti Jón Ólafsson í Salinn s.l. vetur og seldist hratt upp á tónleikana. Aðdáendur Sigríðar fagna væntanlega þessum síðbúnu aukatónleikum.
Íslendingar hafa lengi vel tengd ættarnafnið Thorlacíus við vísindi. Hin síðari ár hefur það þó svo sannarlega breyst. Sigríður Thorlacíus er í fremstu röð íslenskra söngkvenna; jafnvíg á hina ýmsu stíla og munar ekki um að bregða fyrir sig frönskunni ef sá gállinn er á henni. Fröken Thorlacíus heimsótti Jón Ólafsson í Salinn síðastliðinn vetur og seldist hratt upp á tónleikana. Aðdáendur hennar geta því fagnað þessum síðbúnu aukatónleikum.
Af fingrum fram – Eivör Pálsdóttir
Fimmtudagur 29. október kl. 20:30
Snillingurinn Eivör fer í gegnum feril sinn og áhugavert lífshlaup auk þess að flytja lögin sem alla langar til að heyra. Náttúrubarnið og Nonni mætast í Salnum.
Íslendingar hafa fyrir löngu eignað sér færeyska náttúrubarnið Eivöru Pálsdóttur sem nam land hér á síðustu öld með það fyrir augum að læra söng. Skemmst er frá því að segja að Eivör og Ísland tengdust órjúfanlegum böndum og nú ætlar hún að heilsa upp á Jón Ólafsson í Salnum og fara í gegnum áhugavert lífshlaup sitt og gifturíkan tónlistarferil sem sér ekki fyrir endann á. Spjalltónleikar þessir með Eivöru hafa alla burði til að lyfta upp anda þeirra sem mæta til leiks með sinn opna huga og tónlistaráhuga.
Af fingrum fram – Laddi
Föstudagur 20. nóvember kl. 20:30
Ástsælasta skemmtikrafti þjóðarinnar frá upphafi er margt til lista lagt. Laga- og textahöfundurinn Laddi vill stundum gleymast. Jón spyr kappann spjörunum úr og músíkin verður á sínum stað.
Tónlistin hefur alltaf staðið Ladda nærri; allt frá því hann var liðsmaður hinna goðsagnakenndu Faxa. Látum sem ekkert C, Hlunkur er þetta, Umhverfis jörðina á 45 mínútum og Deió eru hljómplötur sem er að finna á öðru hverju íslensku heimili og á þessum plötum er fjöldi laga og texta sem Laddi samdi. Lög eins og Austurstræti, Ég pant spila á gítar mannanna, Búkolla og Sandalar urðu til í heilabúi þessa fjölhæfa listamanns sem ætlar að ræða um ferilinn við Jón Ólafsson, allar týpurnar sem hafa orðið til og síðast en ekki síst lögin og textana. Deió!!
Af fingrum fram – Páll Óskar
Föstudagur 15. janúar kl. 20:30
Samspil Páls Óskars og Jóns Ólafssonar í spjalli, spileríi og spekúlasjónum er á pari við uppistand af bestu gerð. Fyrrum barnastjarnan og núverandi súperstjarnan dregur ekkert undan. Getur ekki klikkað.
Páll Óskar og Jón Ólafsson endurtaka leikinn enn og aftur á spjalltónleikum með tilheyrandi glensi og alvöru. Verið viðbúin að reka upp hláturrokur sem aldrei fyrr. Það verður einnig stutt í tárin þegar Páll Óskar flytur sínar hugljúfu ballöður á sinn einstaka hátt.
Af fingrum fram – Páll Rósinkranz
Föstudagur 29. janúar kl. 20:30
Einn ástsælasti söngvari landsins mætir loks í heimsókn til Jóns Ólafssonar. Tónlistin er af ýmsum toga og ljóst að af nógu verður að taka á þessum spjalltónleikum.
Páll Rósinkranz vakti strax athygli rétt skriðinn á bílprófsaldurinn með hljómsveitinni Jet Black Joe árið 1992 og hefur ekkert slegið af síðan. Hann er einn okkar alfremsti söngvari og var ekki lengi að komast í fremstu röð . Það verður af nógu verður að taka í tónum og tali þegar hann mætir í Salinn ræðir um litríkt lífshlaup sitt auk þess að fylla húsið með sinni hljómmiklu rödd.
Af fingrum fram – Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Föstudagur 19. febrúar kl. 20:30
Eyþór Ingi hefur afrekað ótrúlega mikið á sínum stutta ferli. Þeir Jón stilla saman strengi sína í Salnum og ljóst er að spennandi kvöld er í vændum.
Eyþór Ingi er mörgum hæfileikum búinn og virðist jafnvígur sem söngvari, lagahöfundur og leikari. Íslendingar kynntust honum fyrst í gegnum sjónvarp þegar hann sigraði í Bandinu hans Bubba árið 2008 en Norðlendingar vissu auðvitað mæta vel hvað bjó í þeirra manni. Eyþór hefur þótt sýna heimsklassaframmistöðu í hlutverkum sínum í Súperstar, Rocky Horror og Vesalingunum og svo er kauði fyrirtaks eftirherma í ofanálag!
Af fingrum fram – Pálmi Gunnarsson
Föstudagur 4. mars kl. 20:30
Þjóðin elskar Pálma Gunnarsson og lögin sem óma daglega á öldum ljósvakans í hans flutningi. Vopnaður bassanum mætir Vopnfirðingurinn til Jóns Ólafssonar og það verður ekkert gefið eftir!
Ásamt Magnúsi Eiríkssyni hefur Pálmi staðið í framlínu Mannakorna frá árinu 1974 og slær hvergi af á listabrautinni. Sólóplötur Pálma hafa ratað inn á þúsundir íslenskra heimila rétt eins og plötur Mannakorna og lögin eru okkur að góðu kunn, t.d. Ég elska þig enn, Vegurinn heim, Sölvi Helgason og Hvers vegna varstu ekki kyrr? Pálmi er einnig frábær bassaleikari og þeir sem mæta á svæðið munu svo sannarlega fá að sjá allar hans bestu hliðar á sviði söngs, hljóðfæraleiks og frásagnargáfu.