Nú hafa fjórir landsþekktir og rótgrónir rokkhundar tekið sig saman til þess að heiðra hljómsveitina The Clash á Græna hatturinum 27. júní.
Heiðar Örn Kristjánsson (Botnleðja, Pollapönk): Gítar og söngur
Baldur Ragnarsson (Skálmöld, Ljótu hálfvitarnir, Innvortis): Gítar
Jakob Smári Magnússon (Grafík, Das Kapital, John Grant): Bassi
Björn Stefánsson (Mínus, Stóns, Melrakkar): Trommur
Á tónleikunum verða öll þekktustu lög The Clash leikin, lög á borð við London Calling, Should I Stay or Should I Go, Guns of Brixton, White Riot og Tommy Gun, ásamt úrvali sem spannar allan ferilinn. Þessi meistaraverk í höndum slíkra snillinga er eitthvað sem engin áhugamanneskja um tónlist skyldi missa af!