Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Snoopadelic Partý með Snoop Dogg - Tónleikar

$
0
0

Snoop heldur partý í Laugardalshöll

Rappgoðsögnin Snoop Dogg kemur hingað til lands í júlí og heldur partí í Laugardalshöll. Þetta staðfestir Vilhjálmur Sanne tónleikahaldari hjá Nordic Events. Snoop Dogg hefur áður komið til landsins, en þá hélt hann tónleika. Nú er hann í öðrum erindagjörðum. Nú kemur rapparinn fram sem DJ Snoopadelic, en hann hefur ferðast um heiminn og haldið veislur víðsvegar. Snoop stýrir þá gleðskap í nokkra klukkutíma, leikur sína uppáhalds tónlist í bland við eigin lög sem hann rappar. 

„Við munum breyta Laugardalshöll í heljarinnar klúbb. Snoop mun stýra tæplega þriggja klukkustunda partýi. Hann mun stýra tónlistinni, rappa og verður með dansara með sér á sviðinu. Þetta verður heljarinnar veisla,“ útskýrir Vilhjálmur. Þessar uppákomur hafa fengið góða dóma. Sjálfur segist Snoop hafa mikinn áhuga á því að vera plötusnúður og að hann leggi sig mikið fram við að finna ferska tónlist. „Ég er alltaf að brýna sverðið mitt,“ sagði hann í viðtali við tímaritið Vibe um hvort hann æfði sig mikið sem plötusnúður.

Partýið verður haldið þann 17. júlí, þannig að það líður nákvæmlega áratugur frá síðustu heimsókn rapparans til landsins. Hann tróð upp í Vodafone-höllinni þann 17. júlí 2005. 

Snoop Dogg er einn þekktasti rappari heims. Hann kemur frá Long Beach í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum. Plötur Snoop, sem er 44 ára gamall, hafa selst í yfir 30 milljónum eintaka um allan heim. Hann gaf út sína fyrstu plötu árið 1992, sú bar titilinn Doggystyle og skaut honum á stjörnuhimininn. Í maí kemur þrettánda breiðskífa kappans út. Hún kallast Bush og er unninn í samvinnu við hinn geysivinsæla Pharrell Williams.

Vinsamlegast athugið

18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.