
Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson munu leika á tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudagskvöldið 14. ágúst. Kirkjan opnar fyrir gesti kl. 20 og tónleikar hefjast svo á slaginu 20:30. Hljómsveitin Vök mun einnig koma fram, en hún gaf nýverið út sína fyrstu plötu, EP plötuna Tension.
Ólöf Arnalds er á leið í stutta tónleikaferð um Evrópu til að fylgja eftir nýrri breiðskífu sinni, en platan Sudden Elevation kom út hjá breska útgáfufélaginu One Little Indian fyrr á þessu ári en var tekin upp af Skúla Sverrissyni í sumarbústað í Hvalfirði. Hún hefur fengið glimrandi dóma í erlendri tónlistarpressu. Í gagnrýni tónlistartímaritsins Mojo er rödd Ólafar sögð svipa til Nico á sólríkum degi og Uncut líkir rödd hennar við Buffy Sainte-Marie og Vashti Bunyan og gefur plötunni 8/10 í einkunn. Í mars-hefti tónlitartímaritsins Clash fær platan einnig 8/10. Íslenskir gagnrýnendur taka í sama streng. Trausti Júlíusson segir Sudden Elevation vera “mjög flott plata” og gefur henni 4/5.
Skúli Sverrisson mun leika eigin lög sem og með Ólöfu, en þau hafa starfað saman undanfarin ár og lagt hvort öðru lið við tónlistarsköpun ýmiskonar. Síðasta verk Skúla kom út síðastliðið haust en það var samvinnuverkefnið, hans og Óskars Guðjónssonar, The Box Tree. Hljómplatan hlaut íslensku tónlistarverðlaunin sem plata ársins í flokki djass og blús.