Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Kvöldstund með Valgarði Egilssyni og fjölsk. - Tónleikar

$
0
0

Læknirinn, vísindamaðurinn, skáldið og fjölskyldumaðurinn Valgarður Egilsson hefur ekki verið við eina fjölina felldur. Föstudaginn 17. apríl gefst landsmönnum kostur á að njóta samvista með Valgarði og konu hans, Katrínu Fjeldsted og börnum.  Valgarður hyggst blanda saman skemmtun og fróðleik; hann ræðir hugmyndir sem tengjast landnámi og sögu Íslands, nánar tiltekið á vatnasviði Ölfusár. Margir landnámsmenn tilheyrðu "tap-liðinu" í Noregi. Hann ræðir merkan þátt Ölfusinga i landakönnun á Norðvestur-Atlantshafi. Milli frásagna munu afkomendur  Valgarðs koma með innlegg: rímnakveðskap, söng og píanóleik. Katrín Fjeldsted stýrir samkomunni. 

Miða er hægt að kaupa á www.midi.is og kostar 1000 kr. Veitingastofurnar á 1.hæð eru opnar frá kl.18. Borðapantanir í síma 511-1904. 



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696