Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur 20 ára.
Léttsveitin var stofnuð haustið 1995 og heldur því upp á 20 ára afmæli sitt á þessu ári. Hátíðartónleikar í tilefni afmælisins verða haldnir í Silfurbergi Hörpu þann 9. maí kl. 16.
Léttsveitin mun slá á létta strengi að vanda og flytja dægurlög sem hafa verið vinsæl á Íslandi í gegnum tíðina. Á dagskránni eru einnig lög sem fyrrum kórstjóri Léttsveitarinnar, Jóhanna V. Þórhallsdóttir, hefur samið fyrir kórinn. Í hópi annarra lagahöfunda eru m.a. Magnús Eiríksson, Sinéad O´Connor, Paul Simon, Bragi Valdimar Skúlason og Tómas R. Einarsson.
Hljómsveitina sem spilar með kórnum skipa þau Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari, Gunnar Hrafnsson bassaleikari, Eric Quick trommuleikar og Kjartan Guðnason slagverksleikari ásamt hljómsveitarstjóranum og píanóleikaranum Aðalheiði Þorsteinsdóttur.
Stjórnandi er Gísli Magna.