Hljómsveitin Of Monsters and Men mun koma fram í Hörpu í ágúst. Sveitin sendir frá sér sína aðra breiðskífu í sumar og leggur sveitin af stað í tónleikaferðalag víða um heim í maímánuði.
"Við hlökkum mikið til að spila í Hörpu í ágúst. Það verður gott að koma aðeins heim, halda tónleika og fá skammt af íslensku sumri í leiðinni," segir Ragnar Þórhallsson um fyrirhugaða tónleika hér á landi.
Hin nýja plata sveitarinnar mun bera titilinn Beneath the Skin og verður gefin út hér á landi á vegum Record Records.
Sveitin hefur notið mikilla vinsælda um allan heim og komið fram á hátíðum á borð við Lollapalooza, Bonnaroo, Coachella, Glastonbury og spilað um allan heim á tónleikum. Fyrsta stopp sveitarinnar á tónleikaferðalaginu í ár verður í Toronto í Kanada þann 4. maí.