
Þann 5. október 1963 spiluðu Hljómar á sínu fyrst balli í Krossinum í Keflavík og nú sléttum 50 árum seinna verða stórtónleikar þeim til heiðurs. Á þessum tónleikum verða spiluð öll bestu lög Hljóma svo sem Þú og ég, Bláu augun þín, Ég elska alla, Fyrsti kossinn og fleiri og fleiri. Ekki missa af einstökum tónleikum þar sem Hljómar koma fram 50 árum eftir að þeir spiluðu fyrst opinberlega.
Tónlistarstjóri:
Eyþór Gunnarsson
Söngur:
Stefán Hilmarsson
Valdimar Guðmundsson
Unnsteinn Manuel
Ágústa Eva Erlendsdóttir
Sérstakir gestir verða hinir upprunalegu Hljómar:
Engilbert Jensen
Gunnar Þórðarson
Erlingur Björnsson
ásamt syni Rúnars Júl, Júlíus Freyr Guðmundsson