HVER STUND MEÐ ÞÉR - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Ástarljóð afa til ömmu í 60 ár
Anna María samdi alla tónlistina á plötunni við ástarljóð sem afi hennar, Ólafur Björn Guðmundsson, orti til ömmu hennar, Elínar Maríusdóttur, yfir 60 ára tímabil. Svavar Knútur Kristinsson syngur og spilar með Önnu Maríu á plötunni sem tekin var upp síðastliðið sumar.
Anna María Björnsdóttir er að gefa út sína aðra sólóplötu Hver stund með þér. Anna María samdi alla tónlistina á plötunni við ástarljóð sem afi hennar, Ólafur Björn Guðmundsson, orti til ömmu hennar, Elínar Maríusdóttur, yfir 60 ára tímabil. Samhliða geisladisknum er verið að klára heimildarmynd um ljóðin, ástina, Óla og Ellu. Svavar Knútur Kristinsson syngur og spilar með Önnu Maríu á plötunni sem tekin var upp síðastliðið sumar á heimili foreldra Önnu Maríu í Garðabæ.Anna María sá þessi ljóð fyrst eftir að afi hennar og amma voru bæði látin og fannst henni þau geyma mikinn fjársjóð um ástina og það fagra í heiminum. ,,Ljóð afa til ömmu fela í sér fallegan boðskap um hvernig ástin getur haldist hrein og vaxið og dafnað í heila mannsævi. Þau hafa haft sterk áhrif á mig og langaði mig að gera þau aðgengileg fleirum á þann hátt sem best liggur fyrir mér, með söng og tónlist. Ég settist því niður við píanóið mitt í Kaupmannahöfn fyrir tæpum tveimur árum og hóf að semja og útsetja tónlist við ljóðin. Árangurinn af því er þessi plata. Vona ég að ljóðin hans afa muni þannig lifa áfram og veita öðrum þá gleði sem þau hafa veitt mér.“ segir Anna María.
,,Afi og amma voru ósköp venjulegt fólk, afi var lyfjafræðingur og mikill blómaræktunarmaður. Amma var mjög heimspekilega þenkjandi en mikill húmoristi og gleðipinni. Saman áttu þau ánægjulega ævi, bjuggu í litlu húsi, áttu mörg börn og alltaf ríkti mikil gleði í kringum þau. Þegar ég byrjaði að vinna að plötunni og fór að segja fólki frá ljóðunum og lögunum þáhöfðu margir á orði við mig að nútíma fyrirmynd vantaði um þess konar ást sem endurspeglast í ljóðunum. Skortur á slíkum fyrirmyndum virtist leiða suma að spurninginunni: afhverju ætti ég að trúa á ástina yfir höfuð? Þetta vakti mig til umhugsunar og mótaði hugmyndina um gerð plötunnar sem og heimildarmyndarinnar. Ég vona að ást ömmu og afa geti orðið fyrirmynd einhverra og orðið til þess að fólk öðlist trú á að slík ást sé rauverulega til og sé ekki bara til fyrir fáa útvalda. Eins að platan geti orðið fólki innblástur til að varðveita og rækta þá ást sem það hefur í lífi sínu, í sama hvaða formi hún er. Amma og afi töluðu alltaf um mikilvægi þess að rækta garðinn sinn og að eins væri það með ástina og garðinn, allt vex sem hlúð er að og allt deyr sem ekki er hirrt um.
Þessi plata er fyrir fólk sem trúir á ástina eða vill trúa á ástina. Ekki ást sem er fjarlæg og yfirnáttúrulega rómantísk, heldur ást sem er venjuleg, hversdagsleg og hversdagslega rómantísk.
Á tónleikunum syngja og spila Svavar Knútur Kristinsson, Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen, Gunnar Jónsson, Hallgrímur Jónas Jensson, Grímur Helgason, Margrét Arnardóttir, Björn Már Ólafsson og Anna María Björnsdóttir.