MK Urpið
Söngkeppni nemenda í Menntaskólanum í Kópavogi verður haldin hátíðlega í Gamla bíói fimmtudagskvöldið 12. febrúar. Söngkeppnin hefur aldrei verið jafn glæsileg og þetta árið. Í fyrra fóru þau Magnea Rún og Sigurpáll Viggó með sigur úr bítum, og lentu þau sömuleiðis í 2. sæti í Söngkeppni Framhaldsskólanna.
Selt er í númeruð sæti, svo við mælum eindregið með því að bóka miða til að fá bestu sætin!
Við óskum ykkur góðrar skemmtunar í ár og erum spennt fyrir að sjá þig!