Karlakórinn Esja heldur tónleika í Háteigskirkju laugardaginn 7. febrúar næstkomandi klukkan 15:00.
Úrval söngvara frá Esjunni munu syngja einsöng með kórnum ásamt því að frumflutt verður nýtt tónverk eftir einn af meðlimum kórsins, Trausta úr Vík, í útsetningu Kára Allanssonar, kórstjóra Esjunnar.
Sérstakir gestir á tónleikunum verða kvennakórinn Katla og strengjakvartettinn Dynjandi.
Kórnum til halds og trausts verða jafnframt hljóðfæraleikarar sem leika á píanó og bassa.
Hlökkum til að sjá ykkur