Tónsnillingar morgundagsins
Tónleikar í Kaldalóni, Hörpu sunnudaginn 8 febrúar 2015 kl. 16.00
CARLOS CARO AGUILERA, básúnuleikari og ÁSTRÍÐUR ALDA SIGURÐARDÓTTIR, píanóleikari
Á efniskránni:
S. Sulek: Sónata „Vox Gabriel“
C. Saint-Saens: Cavatine, op. 144
A. Guilmant: Morceau symphonique, op. 88
P. Hindemith: Sónata fyrir básúnu og píanó
E. Reiche: Konsert nr. 2 í A-dúr
CARLOS CARO AGUILERA, básúnuleikari, er fæddur árið 1988 í Almería á Spáni. Carlos lauk B.Mus gráðu árið 2010 frá Tónlistarháskólanum í Murcia á Spáni, þar sem hann lærði hjá Mario Calvo Ponce.
Vorið 2013 lauk Carlos Masters gráðu frá Konunglega tónlistarháskólanum í Brussel, þar sem kennari hans var Bart van Nieuwehuyse. Þaðan útskrifaðist hann með hæstu mögulega einkunn og hlaut „Ingeborg Köberle“ verðlaunin, sem veitt eru fyrir framúrskarandi tónlistarflutning á Mastersprófi.
Á Spáni hefur Carlos leikið með Almeríabrass Ensemble og Sinfóníuhljómsveit Almería (OCAL). Í Belgíu lék Carlos reglulega í afleysingum með Royal Flemish Philharmonic, sem er ein fremsta hljómsveit Belga. Sem einleikari hefur Carlos leikið með Ungmennahljómsveit Andalúsíu, Blásarasveit Almería og Kammersveit Reykjavíkur.
Carlos flutti til Íslands í júlí 2013 og starfar sem básúnukennari hjá Skólahljómsveit Kópavogs.
ÁSTRÍÐUR ALDA SIGURÐARDÓTTIR, píanóleikari, lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Önnu Þorgrímsdóttur.
Á árunum 2000-03 stundaði hún nám hjá Reiko Neriki við Indiana University – Jacobs School of Music í Bloomington þaðan sem hún lauk Artist Diploma.
Ástríður hefur sótt námskeið og einkatíma í píanóleik og kammertónlist hjá listamönnum á borð við Geörgy Sebök, Ludwig Hoffmann, Janos Starker, Jürgen Schröder og Olaf Dressler.
Ástríður leikur með kammerhópnum Elektra Ensemble og tangósveitinni Fimm í tangó. Sjálf hefur hún gefið út sólóplötuna CHOPIN (2010) en einnig hafa komið út geislaplöturnar FIMM Í TANGÓ (2010), ALDARBLIK (2007) með söngvurunum Eyjólfi Eyjólfssyni og Ágústi Ólafssyni og PORTRAIT (2013) með Emilíu Rós Sigfúsdóttur flautuleikara.