Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð sem Hannesarholt heldur í samvinnu við Gerrit Schuil. Alls verða haldnir þrennir tónleikar á þessu misseri. Tónleikarnir eru u.þ.b klukkustundar langir og munu söngvararnir kynna dagskrána sjálfir. Að þessu sinni syngur Þóra Einarsdóttir sópran, lög eftir Richard Strauss við undirleik Gerrit Schuil.?Þann 1. mars mun Rannveig Fríða Bragadóttir syngja Schubert og 29. mars er röðin komin að Hönnu Dóru Sturludóttur sem syngur Mahler. Það verða jafnframt lokatónleikar í þessari glæsilegu tónleikaröð.
↧