Ljótu hálfvitarnir lögðust í dvala í september síðastliðnum og hafa ekki bært á sér síðan. Helgina 20. og 21. febrúar mun þó þessi 9 höfða símjúki loðbangsi heldur betur rumska á ný, því sveitin hyggst hertaka Græna hattinn á Akureyri föstudags- og laugardagskvöld og láta þar öllum illum látum. Rifjaðir verða upp gamlir taktar og jafnvel bæði tónar og textar við taktana. Þegar Hálfvitum er sleppt út á meðal fólks eftir svo langa pásu eru þeir gjarnan eins og kálfar að vori, svo hætt er við að kátínustuðullinn verði með mesta móti. Tónleikarnir hefjast kl. 22 bæði kvöldin.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.