Bubbi og Dimma
Á tónleikunum verða flutt lögin af plötu Utangarðsmanna Geislavirkir og af plötu Das Kapital, Lily Marlene.
Dimma og Bubbi hafa sett upp metnaðarfullt æfingaplan og hvergi verður slegið af fyrr en áhorfendur í Eldborg hafa upplifað einstaka tónleika í íslenskri rokksögu.
Bubbi stofnaði hljómsveitina Utangarðsmenn árið 1979 með Mike og Danny Pollock og þeir fengu með sér Magnús Stefánsson og Rúnar Erlingsson. Platan Geislavirkir kom út í nóvember 1980 og var tímamótaverk í íslenskri rokksögu. Á plötunni voru ttil dæmis lögin Hiroshima og Kyrrlátt kvöld við fjörðinn. Hljómsveitin Das Kapital starfaði í tæp 2 ár og gaf út plötuna Lily Marlene sem inniheldur meða annars lögin Blindsker og Leyndarmál frægðarinnar og Das Kapital talin ein helsta költ sveit rokksins.
Mögnuð kvöldstund 6. mars þegar rokk-kóngur Íslands og ein vinsælasta þungarokksveit landsins um árabil koma saman og lög Utangarðsmanna og Das Kapital fá að hljóma sem aldrei fyrr.
Bubbi Morhtens söngur
Stefán Jakobsson söngur og gítar
Ingó Geirdal gítar
Birgir Jónsson trommur
Silli Geirdal bassi