Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Jól með Schola cantorum - Gamlir og nýir söngvar jólanna

Jól með Schola cantorum

Gamlir og nýir söngvar jólanna

Kammerkórinn Schola cantorum heldur jólatónleika í Hallgrímskirkju sunnudaginn 28. desember kl. 17.

Tónlistin er úr ýmsum áttum en einkennist öll af hátíðlegum andblæ jólahátíðarinnar þar sem kórinn mun syngja lög allt frá þýskum meisturum 16. aldar til nýrra verka, auk vel þekktra jólalaga.

Af íslenskum verkum tónleikanna ber hæst frumflutning á fjórum jólalögum eftir Hafliða Hallgrímsson en undanfarið hafa jólalög hans fyrir kóra vakið athygli í Englandi þar sem hann er búsettur. Vel þekkt lög, bæði íslensk og erlend munu hljóma og má þar nefna Betlehemsstjörnuna eftir Áskel Jónsson, Jólagjöfina eftir Hörð Áskelsson og Ó, helga nótt eftir Adams.

Einsöngvarar eru Fjölnir Ólafsson barítón, Hildigunnur Einarsdóttir alt og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran.

Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og stjórnandi Hörður Áskelsson.

Schola cantorum kemur nú fram í 24. skipti á þessu ári ásamt stjórnanda sínum Herði Áskelssyni.  Að venju hefur víða verið komið við í tónlistarflutningi á árinu. Kórinn hélt síðast tónleika í Storkyrkan í Stokkhólmi  í nóvember síðastliðnum þar sem hann söng meðal annars verk eftir Arvo Pärt, James MacMillan, Eric Withacre og kórfélagana Sigurð Sævarsson og Hreiðar Inga Þorsteinsson. Að auki hélt kórinn kynningu á íslenskum tónlistararfi í Konunglega Tónlistarháskólanum í Stokkhólmi.

Schola cantorum hefur jafnan sinnt fjölbreytilegum verkefnum fyrir utan hefðbundið tónleikahald. Kórinn söng meðal annars á Listahátíð í Reykjavík verk Ragnars Kjartanssonar og Kjartans Sveinsonar, Der Klang der Offenbarung des Göttlichen. Einnig má nefna upptökur á tónlist eftir Ben Frost fyrir BBC og nú síðast um miðjan desember söng kórinn í upptökum fyrir kanadíska raftónlistarmanninn Tim Hecker og Bedroom Community.

Á komandi ári mun Schola cantorum halda tónleika í mars þar sem endurreisnartónlist verður í öndvegi

Miðaverð 3.500 kr./ 2.500 kr. fyrir Listvinafélaga (Afsláttinn er aðeins hægt að nýta í Hallgrímskirkju)

Nánari upplýsingar veita Hörður Áskelsson s. 693 6690 og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir s. 695 6326



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


EASY COME, EASY GO


Pokemon para colorear


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Patama Quotes – Tanga love tagalog quotes


Ligaw Quotes – Courting Quotes – Sweet Tagalog Quotes


INUMAN QUOTES


Hugot Lines 2020 Patama : ML Edition


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Girasoles para colorear


Gwapo Quotes : Babaero Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Patama tagalog quotes – Move On Quotes


Inggit Quotes and Kabit Quotes – Tagalog Patama Quotes


5 Uri ng Pambobola


kasama kang tumanda


RE: Mutton Pies (frankie241)


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.