Hvanndalsbræður halda sín árlegu jólatónleika um jólin , nema hvað!
Að vanda ætla þeir félagar að nota annan dag jóla til að hrista af sér jólaspikið og sprikla og sprella eins og engin sé morgun dagurinn enda er svo sem engin trygging fyrir því að það verði neinn morgundagur eftir þetta geim, í það minnsta verður hann kvalarfulllur fyrir margan manninn, og konuna.
Ekki verða leikin nein jólalög á þessum jólatónleikum enda ekkert jafn hundleiðinlegt og jólalög eftir að hápunkti jólanna er náð og nánast ekkert eftir nema að slíta niður fjandans jólaskrautið.
En fyrir alla muni missið ekki af þessari hátíðlegu stund með okkur félögunum.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.