Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Höfuðtónskáld og frumkvöðlar -

$
0
0

Höfuðtónskáld og frumkvöðlar

Stór hljómsveitarverk eftirtektarverðra tónskálda; baráttukvenna og brautryðjenda verða í brennidepli þegar aldarafmælis kosningaréttar íslenskra kvenna verður minnst á sögulegum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Jórunn Viðar, eitt af höfuðtónskáldum 20. aldar- innar á Íslandi, Ethel Smyth sem var betur þekkt sem pólitískur aðgerðasinni og kvenréttindakona, þrátt fyrir ótvíræða tónlistarhæfileika, og Amy Beach sem var fyrsta bandaríska kventónskáldið sem átti miklum vinsældum að fagna heima fyrir og í Evrópu; þessar listakonur ruddu brautina fyrir komandi kynslóðir tónsmiða.

Anna Þorvaldsdóttir er í fremstu röð yngri tónskálda en hún hlaut meðal annars Tónlistarverðlaun Norðurlanda- ráðs fyrir verk sitt Dreymi. Einleikari á tónleikunum er Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari og stjórnandi er aðal- hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar í Rio de Janeiro, Ligia Amadio sem hefur stjórnað þekktum hljómsveitum í Ameríku, Asíu og Evrópu og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín.

Tónleikarnir eru hluti af dagskrá sem haldin er í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Pokemon para colorear


Sapos para colorear


Maganda Quotes – tagalog Quotes – Inggit Quotes


“Tado” Jimenez Quotes Collections Online


5 Tagalog Relationship Rules


Hugot Lines 2020 Patama : ML Edition


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Girasoles para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Mga Patama sa mga Nagmamahal the Best Tagalog love quotes for you


Top 10 Best Tagalog Friendship Quotes and Sayings | mrbolero


“BAHAY KUBO HUGOT”


RE: Mutton Pies (frankie241)


EASY COME, EASY GO


HOY PANGIT, MAGBAYAD KA!