
Einu sinni enn fær þessi frábæra dagskrá að hljóma á Græna Hattinum. Lögin sem Óðinn Valdimarsson gerði ódauðleg og þessi frábæri hópur tónlistarmanna með söngvarana Óskar Pétursson, Helenu Eyjólfsdóttur, Snorra Guðvarðarson, Hermann Arason, Friðjón Jóhannsson og Brynleif Hallsson í forgrunni. Rafn Sveinsson rekur sögu Óda og er jafnframt kynnir.
Þetta er í allra síðasta skipti sem þessi dagskrá er flutt.
18 ára aldurstakmark.