Tónlistarkonan Nirinjan Kaur fæddist inn í kundalini jóga fjölskyldu og fékk jógakennararréttindi aðeins 13 ára gömul og fljótlega upp úr því fór ást hennar á möntrutónlist vaxandi. Frá þessum unga aldri hefur hún kennt kundalini jóga námskeið, leitt möntruviðburði og haldið tónleika um allan heim, ein og með öðrum heimsþekktum möntrulistamönnum eins og Snatam Kaur og Mirabai Ceiba. Rödd hennar er hjartaopnandi og færir hlustandannn inn í hreint og tært rými alsælu og heilunar.
Indversk tónlistarhefðin sem Nirinjan er menntuð í flæðir áreynslulaust í gegn um leið og hún blandar indverskri hefðinni saman við tónlistarhefð kundalini jóga.
Gefnir hafa verið út 7 diskar með Nirinjan auk þess sem lög hennar hafa birst á fjölda annarra diska. Nýjasti diskur Nirinjan er From Withi, þar spilar Matthew Schoening með henni en hann verður með á tónleikunum.
Nirinjan er rísandi stjarna í heimi möntrutónlistar og er það mikill fengur fyrir unnendur upplyftandi og nærandi tónlistar hennar að hún skuli nú halda möntrutónleika á Íslandi.
Matthew Schoening spilar hann á elektrónískt selló. Hann notar í spilun sinni lifandi lúppur (live looping). Þó aðeins sé um eitt hljóðfæri að ræða hljómar það oft eins og heil hljómsveit sé á sviðinu. Matthew hefur gefið út 5 diska.