Ingvar Björn sem er einn fremsti pop art listamaður Íslands um þessar mundir, mun framkvæma geggjaðan listagjörning með fjórum mennskum penslum á sviði Gamla bíós. Hljómsveitin Vök og Blaz Roca eru ofin saman inn í gjörningin og munu spila á meðan Ingvar umbreytir stærsta abstract Social Media listaverki í heimi yfir í annað form með fjórum módelum.
Framúrstefnuleg tónlist sem ofin er við Social Media myndlist er platform listamannsins. Ingvar mun stýra mennsku pennslunum á milli tákna í verkinu “The Largest Artwork” sem er stærsta abstract Social Media listaverk í heimi. Áhorfendur fá að upplifa frábæra tónlist og unaðslega sýningu þar sem öll skynfæri áhorfandans fá að njóta sín.