Sigurðar Flosason og félagar á Græna hattinum
Jazzaður blús og blúsaður Jazz
Saxófónleikarinn Sigurður Flosason stendur fyrir tónleikum á Græna hattinum sunnudaginn 23 nóvember kl 21. Með honum leikur úrvalslið íslenskra tónlistarmanna; þeir Þórir Baldursson á Hammond orgel, Pálmi Gunnarsson á bassa og Halldór G. Hauksson á trommur. Þeir munu flytja taktfasta og aðgegnilega tónlist á mörkum jazz og blús, m.a. af vinsælum plötum Sigurðar sem nefnast „Bláir skuggar“, „Blátt ljós“ og „Blátt líf“. Þess má geta að Sigurður varð fimmtugur fyrr á árinu og hélt í tilefni þess fjölsótta tónleika í Norðurljósasal Hörpu. Tónleikarnir á Græna hattinum verða með svipaðri dagskrá.
Sigurður Flosason er sexfaldur handhafi íslensku tónlistarverðlaunanna, ýmist sem jazzleikari árisins, jazz höfundur ársins eða fyrir plötu ársins. Hann starfar sem yfirmaður jazzdeildar Tónlistarskóla FIH í Reykjavik, auk þess að sinna fjölbreytilegum tónlistarstörfum.