Töfrar Tom Jones
Umsagnir gesta eru á einn veg!
“Ég vissi alveg að þeir gætu sungið vel en þvílíkir skemmtikraftar sem þessir drengir eru. Gæsahúð, hlátur og svei mér þá ef ég táraðist ekki í nokkrum lögum”
“Þetta var algerlega ógleymanlegt kvöld. Stemningin í salnum var eins og á landsleik í handbolta og Ísland með yfirhöndina. Hef ekki upplifað svona kvöld í háa herrans tíð”
“Við fórum saman vinkonurnar og höfum sjaldan hlegið eins mikið á ævinni. Ég ætla aftur!”
Töfrar Tom Jones var frumsýnt í Austurbæ 1. nóvember sl. við fádæma viðtökur gesta sem taka virkan þátt í þessari stórskemmtilegu sýningu þar sem Matthías Matthíasson, Friðrik Ómar og Færeyingurinn Jógvan Hansen fara á kostum í leik, söng og dansi. Flutt eru lög frá ferli sjarmörsins Sir. Tom Jones auk þess sem drengirnir slá á heldur betur létta strengi. Auk þeirra stígur á svið 11 manna stórskotalið hljómlistarmanna og höfðu menn það á orði að hljómurinn hefði verið stórfenglegur þegar allir helstu slagarar Jones voru fluttir af miklum krafti. Meðal laga í sýningunni eru Delilah, Sex bomb, Whats new pussycat, Its not unusual, You can leave your hat on, You’ll never walk alone, You’re my world, Green green grass of home og She’s a lady.
Hér er skemmtun sem lætur engann ósnortinn og er tilvalin fyrir hópa og fyrirtæki.
Matthías Matthíasson söngur
Jógvan Hansen söngur
Friðrik Ómar söngur
Margrét Eir söngur
Erna Hrönn söngur
Ari Bragi Kárason trompet
Ívar Guðmundsson trompet
Bergur Þórisson básúna
Steinar Sigurðarson saxofónn
Benedikt Brynleifsson trommur
Diddi Guðnason slagverk
Kristján Grétarsson gítar
Róbert Þórhallsson bassi
Stefán Örn Gunnlaugsson píanó
Haukur Henrikssen barþjónn og naríuhirðir
Lýsing: Helgi Steinar
Hljóð: Jóhann Rúnar
Nótur: Agnar Már Magnússon
Danshöfundur: Yesmine Olsson
Búningar: Selma Ragnarsdóttir
Förðun: Sólveig Birna Gísladóttir
Handrit: Friðrik Ómar, Matthías Matthíasson og Jógvan Hansen