
Tónlistarhátíðin Innipúkinn 2013
Ólgandi stemmning í Reykjavík um Verslunarmannahelgina
Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í tólfta skipti í Reykjavík um Verslunarmannahelgina. Innipúkinn 2013 teygir sig yfir tvo daga og fer fram föstudags- og laugardagskvöld, dagana 2. og 3. ágúst. Hátíðin í ár fer fram víða um Reykjavík, en aðaldagskráin verður á Faktorý. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin fer fram á þeim frábæra tónleikastað, og er þetta næstsíðasta tónleikahelgi staðarins.
Jafnan er fjölmikið um dýrðir á meðan að Innipúkinn stendur yfir. Auk sjóðheitrar tónlistardagskrár á Iðnó verður ýmislegt til gamans gert - og vinsælir viðburðir á borð við kareókí, markaður, veitingasala og hinn margrómaði Cocktel-zeit kíkja í heimsókn.
Innipúkinn hefur farið víða síðan hátíðin var fyrst haldin árið 2002. Margir af fremstu tónlistarmönnum og skemmtikröftum landsins hafa komið fram á hátíðinni - og má þar nefna Ómar Ragnarsson, Gylfi Ægisson, Raggi Bjarna, Þú og ég, Dikta, FM Belfast, Trabant, Mínus, Mugison, Megas, Hjaltalín, Ólöf Arnalds og svo mætti lengi áfram telja. Auk þess hafa erlendir gestir á borð við Cat Power, Blonde Redhead, Raveonettes, Jonathan Ritchman og Television spilað á púkanum. Innipúki undanfarinna ára hefur verið alfarið íslenskur og verður ekki breyting á því í nú - enda af nægu góðu og skemmtilegu að taka í fjölbreyttri tónlistarflóru landsins.
Aðstandendur Innipúkans hvetja áhugasama til að tryggja sér hátíðar-armband (2 daga passa) í tíma, til að missa ekki af.
Miðar og armbönd
Aðgöngumiðar eru í formi armbands, en hátíðar-armböndin eru slitsterk og eiguleg. Þannig að allir geta komið og farið að vild. Armböndin fást afhend á Faktorý gegn framvísun Midi.is aðgöngmiða.
Einnig veður hægt að kaupa miða á stakt kvöld, bæði á midi.is og við hurð.
Dagskrá Innipúkans 2013 á Faktorý
(tímasetningar verða birtar innan tíðar)
Föstudagur:
Gísli Pálmi
Valdimar
Steed Lord
Skelkur í bringu
Laugardagur:
Botnleðja
Geiri Sæm
Ólafur Arnalds Soundsystem
Ylja
Agent Fresco
Grísalappalísa