Kaleo
Fáir hafa vakið jafn mikla athygli í tónlistarsenunni undanfarin ár og hljómsveitin Kaleo. Þó að hljómsveitin hafi aðeins verið starfrækt í 2 ár hefur hún notið ótrúlegrar velgegni.Undir lok síðasta árs gáfu strákarnir út sýna fyrstu sjálftitluðu breiðskífu sem fór í gull núna í sumar. Þessa dagana eru strákarnir á kafi í gerð nýrrar plötu og munu þeir halda sína síðustu tónleika á árinu í Gamla bíó 28. Nóvember og ekki verða þeir af verri endanum. Strákarnir munu fá ýmsa aukahljóðfæraleikara til liðs við sig ásamt því að flytja mikið af glænýju efni. Verið er að gera byltingakenndar breytingar á húsinu og er óhætt að fullyrða að húsið verði frábært til tónleikahalds.
Þetta ætti enginn aðdáandi Kaleo láta framhjá sér fara.