Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Frönsk saxófóntónlist - Tónleikar

$
0
0

Flytjendur: Guido Bäumer alt-saxófónn og  Aladár Rácz píanó

Efnisskrá:

Fernande Decrück (1896-1954):
8 pieces Francaises (1948) 

Eugéne Bozza (1905-1991):
1. Scaramouche (1944)
2. Pulcinella (1944) 

Claude Pascal (f. 1921):
Sónatína (1947) 

Stutt hlé

Darius Milhaud (1892-1974):
Scaramouche (1937)  
Paule Maurice (1910-1967):  
Tableaux de Provence (1955)  

Lífshlaup flytjenda

Aladár Rácz píanó er fæddur í Rúmeníu árið 1967. Hann stundaði fyrst nám í píanóleik við Georges Enescu tónlistarskólann í Búkarest en síðan framhaldsnám við Tónlistarháskólana í Búkarest og Búdapest. Einnig hefur Aladár tekið þátt í mörgum námskeiðum í Evrópu og haldið masterclassnámskeið fyrir píanónemendur. Hann hefur leikið á tónleikum víðsvegar um heiminn, leikið inn á geisladiska og unnið til verðlauna fyrir píanóleik í alþjóðakeppnum, m.a. á Spáni, Ítalíu og í Tékklandi. Á árunum 1999-2013 starfaði Aladár  sem tónlistarkennari við Tónlistarskóla Húsavíkur, lék með ýmsum kórum og söngvurum á Norður- og Austurlandi (s.s. Leikhúskórnum á Akureyri og Kammerkór Austurlands). Hann var einnig um tíma meðleikari framhaldsnemenda við Tónlistarskólann á Akureyri. Aladár hefur leikið einleik í Salnum í Kópavogi og með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í píanókonsert nr.1 eftir Ludwig van Beethoven. Fyrir nokkrum árum lék Aladár  Goldberg-tilbrigðin eftir J.S. Bach á tónleikum vítt og breytt um landið (m.a. í Salnum í Kópavogi) og fékk mikið lof fyrir leik sinn. Aladár hefur verið búsettur í Reykjavík frá sumri 2013 og kennir við Tónlistarskólann Do Re Mi og er meðleikari í Söngskóla Sigurðar Demetz. Á þessu starfsári Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands mun Aladár leika einleik með hljómsveitinni í píanókonserti nr.1 eftir Johannes Brahms.

Guido Bäumer saxófónn er frá Norður-Þýskalandi og bjó á Dalvík frá árinu 2000 til vors 2005 en hefur síðan verið búsettur í Hafnarfirði. Hann stundaði tónlistarnám í Bremen í Þýskalandi þar sem hann lauk kennaraprófum á bæði saxófón og þverflautu. 

Framhaldsnám stundaði Guido við Tónlistarháskólann í Basel í Sviss þar sem hann lauk einleikaraprófi með hæstu einkunn og við Bowling Green State University í Ohio í Bandaríkjunum þar sem hann lauk "Artist Certificate". Í Sviss kenndi Guido m.a. við Tónlistarskólann í Luzern og lék á barítón-saxófón í saxófónkvartettinum "mit links". Á Íslandi hefur Guido m.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput-hópnum, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands (einnig einleik í saxófónkonsert eftir J. Ibert) og haldið spunatónleika með tölvubreyttum hljóðum. Þá hefur Guido frumflutt verk eftir íslensk tónskáld. Guido kennir við skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu og við Tónlistarskólann í Kópavogi. Hann er einnig barítón-saxófónleikari Íslenska saxófónkvartettsins. Guido og Aladár hafa starfað saman frá árinu 2001.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.