Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Vaki eða sef - Útgáfutónleikar

$
0
0

Sigga Eyrún söngkona heldur útgáfutónleika í tilefni af sinni fyrstu hljómplötu, Vaki eða sef. Tónleikarnir fara fram í Tjarnarbíó 22. nóvember kl. 20:00.

Með Siggu á tónleikunum koma fram:

Andrés Þór - gítar & pedal steel
Andri Ólafsson - bassi og raddir
Karl Olgeirsson - hljómborð, rhodes, raddir og fleira
Kjartan Guðnason - víbrafónn og annað slagverk
Pétur Örn Guðmundsson - hammond og raddir
Sigtryggur Baldursson - trommur

Diskurinn verður til sölu á staðnum á sérstöku tilboðsverði og mun Sigga sjá um að árita hann fyrir þá sem vilja.

Vaki eða sef er fyrsta sólóplata Siggu Eyrúnar.

Platan er að hluta íslensk uppáhaldslög frá áttunda og níunda áratugnum, oft óvænt val, í dreymnum útsetningum þar sem sem órafmögnuð hljóðfæri eins og víbrafónn og annað slagverk blandast oft inn í hljómheim úr rafmögnuðu umhverfi.

Einnig verða frumsamin lög á plötunni eftir Karl Olgeirsson sem annast upptökustjórn og útsetningar. Nú þegar er hægt að heyra hvert stefnir því nokkur lög eru tilbúin og hafa heyrst í útvarpi og á netinu og hafa ratað inná vinsældarlista útvarpsstöðva. Ef glöggt er hlustað má heyra áhrif frá meðal annars amerískri sveita- og vísnatónlist, frönsku sveitinni Nouvelle vague og ýmsum öðrum stílum frá sjötta áratugnum til dagsins í dag.

Sigga Eyrún og Karl hafa kallað til nokkra af uppáhalds tónlistarmönnum sínum til að aðstoða við hljóðfæraleik á plötunni: Ólafur Hólm (Ný Dönsk), Sigtryggur Baldursson (Sykurmolarnir), Andri Ólafsson (Moses Hightower), Friðrik Sturluson (Sálin), Snorri Sigurðarson  (Sælgætisgerðin), Andrés Þór (ASAtrio) og Kjartan Guðnason (Ske).



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


INUMAN QUOTES


Re:Mutton Pies (lleechef)


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes