Árni Karlsson Trió eða Djasstríó Árna Heiðars eins og það heitir í á íslensku fagnar útgáfu þriðja disksins með tríóinu sem ber nafnið Hold og er framhald síðustu plötu Mold, sem kom út í fyrra. Eru þær báðar hluti trílógíu sem mun enda með plötunni Fold sem er væntanleg 2015. Tríóið hefur fengið fádæma viðtökur hérlendis og erlendis og spilaði nú síðast á Djasshátíð Vínarborgar í sumar við mikinn fögnuð áheyranda jafnt sem gagnrýnenda.
"As was to be expected from the Scandinavian jazz scene, Arni Karlsson brought to the festival relaxing beautiful music, full of emotion, expressive depth, colorful harmonies and beautiful Nordic melodies." - Gagnrýni SK Jazz um Vínarkonsertinn
Meðlimir tríósins eru auk Árna Heiðars, Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari og Scott McLemore trommuleikari. Munu þeir leika lögin af plötunni auk nokkurra valinna laga af fyrri plötum. Sem fyrr munu gestum tónleikana vera boðið upp á hressingu á eftir í boði Borg Brugghúss auk kolagrillaðra hamborgara að hætti hússins um leið og platan verður seld og árituð.
(41/2 Stars)”...simple splendor hidden in a wooden soul of this brilliantly creative artist”. ...Um Mold í gagnrýni SK Jazz
"Exquisite lyrical structure, passionate performances and a real sense of adventure when there needs to be." -Jazzwrap, New York, umplötuna Mæri.